Elín Gunnlaugsdóttir

Elín Gunnlaugsdóttir

f. 1965

Elín Gunnlaugsdóttir hóf tónlistarnám níu ára gömul á píanó. Síðar stundaði hún nám við Tónlistarskólann í Reykjavík, þar sem hún lauk kennaraprófi í tónmennt árið 1987 og prófi í tónsmíðum árið 1993. Kennarar hennar í tónsmíðum voru Þorkell Sigurbjörnsson, Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson og Guðmundur Hafsteinsson. Hún stundaði framhaldsnám í Hollandi þar sem hún nam tónsmíðar í tvö ár hjá Theo Loevendie og Diderik Wagenaar við Konunglega tónlistarháskólann í Haag og lauk þaðan prófi árið 1998.

Elín býr nú á Selfossi og hefur starfað sem tónlistarkennari, stjórnandi og tónskáld. Verkaskrá hennar telur vel yfir tuttugu tónverk. Hún hefur samið kammerverk, verk fyrir einleikshljóðfæri (blokkarflautu, klarínett, sembal og bassaklarínett) og fjölmörg söngverk.

Kórtónlist skipar einnig mikilvægan sess í höfundarverki Elínar (hún er menntuð söngkona og virkur þátttakandi í kórastarfi) og hefur hún útsett fjölda íslenskra þjóðlaga sem nýlega fundust í gömlum íslenskum handritum.