Egill Ólafsson

Egill Ólafsson

f. 1953

Egill Ólafsson nam söng og tónfræði við Tónlistarskólann í Reykjavík á árunum 1970–1976. Hann hefur einnig sótt ýmis námskeið á Norðurlöndum tengd leikhústónlist.

Undanfarin ár hefur Egill samið tónlist fyrir leiksýningar, kvikmyndir og söngleiki. Söngleikurinn Eva Luna er byggður á skáldsögu eftir Isabel Allende og Grettir byggir á Grettis sögu. Báðir þessir söngleikir voru settir upp í Borgarleikhúsinu. Hann samdi einnig lög við leikrit William Shakespeare, As You Like It, fyrir sýningu hjá Þjóðleikhúsinu, og nýjasti söngleikur hans er People Come, People Go eftir Sella Pálsson, sem var frumfluttur í John Houseman Theatre í New York.

Egill er einnig virkur sem leikari á sviði, í sjónvarpi og kvikmyndum. Hann hefur verið söngvari margra þekktra hljómsveita á Íslandi og fjölmargar hljóðritanir hafa komið út með flutningi hans og tónlist.