Egill Gunnarsson
f. 1966
Egill Gunnarsson nam gítarleik hjá Snorra Snorrasyni, tónsmíðar hjá Snorra S. Birgissyni og Hauki Tómassyni og söng hjá Elísabetu Erlingsdóttur og Rut L. Magnússon við Tónlistarskólann í Reykjavíkur frá 1985-98. Árið 2000 flutti hann til Ítalíu, þar sem hann stundaði framhaldsnám í tónsmíðum hjá Giovanni Verrando við Scuola civica di musica í Mílanó. Hann sótti einnig námskeið í raftónlist og kvikmyndatónlist og sótti námskeið hjá Alessandro Solbiati, Luca Francesconi, Claudio Ambrosini og fleirum. Frá heimkomu sinni til Íslands hefur hann starfað sem kórstjóri, söngvari, kennari, tónskáld og útsetjari. Hann er reyndur kórsöngvari og stór hluti verka hans er skrifaður fyrir raddir, bæði einsöngslög og kórverk, það stærsta er Messa fyrir kór og kammersveit sem Dómkórinn pantaði hjá honum árið 2010. Hann hefur einnig fengist við útsetningar, jafnt á klassískri tónlist sem og þjóðlögum og popptónlist