Bjarni Bjarnason
f. 1897 , d. 1982
Bjarni var mikill ræktunarmaður. Hann var búhöldur góður. Hann átti mörg áhugamál. Félagsmálamaður var hann mikill. Hann átti stórt og gott bókasafn. Hann grúskaði í ættfræði, stúderaði kenningar dr. Helga Péturss. Fékkst við tónsmíðar. Ritfær var hann svo sem best mátti verða, samdi m.a. sögu Nesja í A-Skaft. Hann var heiðursborgari Nesjahrepps. Þekktastur varð hann fyrir tónlistarstörf sín. Tónlistarkennarar hans voru fyrst Magnús Einarsson, organisti á Akureyri og síðar um skeið, dr. Páll Ísólfsson og Sigurður Birkis.
Vorið 1916 byrjaði Bjarni að spila í Bjarnaneskirkju og var síðan organisti við þá kirkju í 62 ár. Karlakór Homafjarðar starfaði um áratugaskeið undir stjórn hans og á áttatíuafmæli hans átti kórinn hlut að því að gefin voru út 14 sönglög eftir hann.
Konu sína, Ragnheiði Sigjónsdóttur missti Bjarni 22. des. 1979. — Þeim varð þriggja barna auðið.
Minningar. Organistablaðið. 1. nóvember 1982, bls. 10.
Heimild: https://www.ismus.is/i/person/id-1000082