Bára Grímsdóttir

Bára Grímsdóttir

f. 1960

Bára Grímsdóttir hóf tónlistarnám sitt sjö ára gömul. Árið 1983 lauk hún prófi frá tónmenntakennaradeild Tónlistarskólans í Reykjavík. Hún nam tónsmíðar hjá Karólínu Eiríksdóttur við Tónlistarskóla Kópavogs og hjá Atla Heimi Sveinssyni og Hjálmari H. Ragnarssyni við Tónlistarskólann í Reykjavík, þar sem hún lauk prófi frá tónfræðadeild árið 1989. Hún stundaði framhaldsnám við tónlistarháskólann í Utrecht á árunum 1989–1990 og við Konunglega tónlistarháskólann í Haag á árunum 1990–1992. Í Hollandi nam hún tónsmíðar hjá Tristan Keuris, Louis Andriessen og Richard Ayres.

Höfundarverk Báru Grímsdóttur nær yfir verk fyrir einleikshljóðfæri, söngraddir, kórverk, kammerhópa og hljómsveitir. Tónlist hennar hefur verið flutt á Norðurlöndum, í Hollandi, Þýskalandi, Austurríki og í Bandaríkjunum. Hún var staðartónskáld á Skálholtshátíð árin 1998 og 2000.

Bára hefur starfað sem kórstjóri og tónlistarkennari á Íslandi og í Noregi. Hún býr nú í Vestmannaeyjum, þar sem hún starfar sem tónlistarkennari, stjórnandi, tónskáld og flytjandi þjóðlaga.