Ása Önnu Ólafsdóttir
f. 2000
Ása Önnu Ólafsdóttir er tónskáld, hljóðlistarkona og gítarleikari. Hún gengur undir listamannsnafninu Asalaus og hefur verið virk í grasrótarsenunni í Reykjavík. Ása hefur gefið út nokkrar plötur, bæði sem Asalaus og sem meðlimur hljómsveitarinnar Ateria sem sigraði Músíktilraunir árið 2018. Hún blandar saman spuna og fyrirfram sömdum verkum, og tónsmíðar hennar beinast mikið að tilraunum með hljóð og nótnaskrift. Ása leggur nú stund á nám í hljóðlist við Columbia University í New York.