Arvid Ísleifur
f. 2000
Arvid Ísleifur (fæddur 2000) er íslenskt tónskáld sem lærði hjá Hróðmari Inga Sigurbjörnssyni við Listaháskóla Íslands, þar sem hann hlaut BA-gráðu í tónsmíðum árið 2023. Hann lauk einnig einu misseri við HMTM (Hochschule für Musik und Theater München), þar sem hann sérhæfði sig í tónsmíðum fyrir kvikmyndir og miðla. Verk hans eru þó að mestu kórtónlist. Árið 2025 lauk hann námi í hljóðtækni (Sound Engineering).