Árni Egilsson

Árni Egilsson

f. 1939

Árni Egilsson er fæddur í Reykjavík 22. mai 1939. Hann nam við Tónlistarskólann í Reykjavík og hélt síðan til náms í Bretlandi og Hamburg í Þýskalandi (Staatliche Hochschule für Musik). Sem Kontrabassaleikari lék hann með sinfóníuhljómsveitum á Íslandi, Írlandi og Þýskalandi, en þar réði hann hinn kunni stjórnandi Sir John Barbirolli til Bandaríkjanna og spila með sinfóníuhljómsveitinni í Houston, Texas. Eftir Barbirolli lét af störfum tók André Previn við og léku hann og Árni einnig jazz víða saman og spiluðu m.a. á listahátíð í Reykjavík árið 1974.

Gegnum árin hefur Árni gert mikið af að spila einleiksverk fyrir kontrabassa. Sem einleikari hefur hannkomið fram á meginlandi Evrópu og víðsvegar í Bandaríkjunum og fengið frábæra dóma gagnrýnenda.

Árið 1975 frumflutti hann fyrsta íslenska konsertinn fyrir kontrabassa og sinfóníuhljómsveit, "Niður" eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Stjórnandi var Vladimir Ashkenazy og var konsertinn gefinn út á geisladisk.

Árni hefur búið í Los Angeles, California síðan 1969 og er einn eftirsóttasti "stúdíó-bassaleikari" þeirrar borgar. Sem slíkur hefur hann unnið við hljómlist við þúsunda kvikmynda, sjónvarpsþátta og hljómplatna og spilar jöfnum höndum klassíska músík, jazz og rokk.

Um árabil var Árni prófessor í kontrabassaleik við háskólann California State University Northridge og eru margir nemendur hans meðlimir í þekktum sinfóníuhljómsveitum svo sem Los Angeles Philharmonic, San Francisco Symphony, San Diego Symphony og eins Evrópskum hljómsveitum.

Á seinni árum hefur Árni snúið sér að tónsmíðum og hefur samið mikið af kammermúsík, einleiksstykki fyrir kontrabassa, hljómsveitarverk, hljómlist fyrir leikhús og ballett og kórverk.